Table of Contents |
---|
...
- Kortamiðar eru geymdir á CTS kortunum sjálfum þ.e. í örgjafa kortsins. Með því móti getur öll notkun miðans verið mjög hraðvirk og engar truflanir tengdar góðri eða slæmri nettengingu haft áhrif þ.e. nettenging þarf ekki að vera til staðar þegar miðinn er notaður.
- Reikningsmiðar eru aftur á móti geymdir miðlægt á kortareikningi viðkomandi korts þ.e. líkja má reikningsmiðum við inneignir debetkorta þ.e. ekki er hægt að nota inneignina í bankanum nema netsamband sé til staðar til að sannreyna inneign kortsins, sama á við um reikningsmiða þ.e. netsamband þarf til að sannreyna inneign miðans í CTS kerfinu.
Mjög fjölbreytt virkni inneigna/miða
Inneignir (miðar) í CTS kerfinu hafa mjög fjölbreytta virkni og jafnframt er einfalt að bæta við nýjum eiginleikum. Hér eru nokkur dæmi um virkni miða:
...
...
Hvar er hægt að nota inneignir?
Mjög misjafnt er hvar hægt er að nota miða í CTS kerfinu, en almenna reglan er sú að hægt er að nota miða hjá þeim sem leggja þá til. T.d. leggur Reykjavíkurborg til margar tegundir sundmiða og hægt er að nota þá í sundlaugum borgarinnar, sama er að segja um Garðabæ, og fleiri sveitarfélög þ.e. hægt er að nota þeirra sundmiða í þeirra sundlaugum. En ekki er hægt að nota sundmiða eins sveitarfélags í sundlaugum annars sveitarfélags. Fjarðabyggð leggur t.d. einnig til fjölda farmiða sem hægt er að nota á CTS kerfinu í strætisvögnum á Austurlandi. Í strætisvögnum, sundlaugum og öðrum stöðum sem CTS kerfið er notað eru í gildi svokallaðar miðareglur fyrir hvern þjónustustað sem segja til um hvaða miðar gilda á viðkomandi stað og ýmislegt annað tengt notkun miðanna.
Virkni inneigna er mjög fjölbreytt
Inneignir (miðar) í CTS kerfinu hafa mjög fjölbreytta virkni og jafnframt er einfalt að bæta við nýjum eiginleikum. Hér eru nokkur dæmi um virkni miða:
Tímabilsmiði
- Tímabilsmiði hefur gildistíma frá degi og til dags. Miðinn gildir frá og með upphafsdegi og til og með lokadegi. Hægt er Ef upphafsdagur er fram í tímann er ekki hægt að nota miðann ótakmarkað á gildistíma hans, en þó fer það eftir miðareglu:
- BUS / miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann verður að líða 5 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- GATE / miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann í „Aðalvalmynd“ verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er). GATE / miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann „Greitt fyrir annan“ þá þarf enginn tími að líða á milli notkunarfyrr en á upphafsdeginum. T.d. ef korthafi er með á korti sínu ársmiða í sund sem rennur út eftir 20 daga, getur hann keypt nýjan ársmiða á kortið sitt og látið gildistíma hans hefjast eftir 20 daga.
- Hægt er að nota miðann ótakmarkað á gildistíma hans.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni tímabilsmiði eru á sama kortinu þá er sá tímabilsmiði notaður sem hefur meiri forgang í samkvæmt miðareglu fyrir viðkomandi útstöðþjónustustað.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni tímabilsmiði eru á sama kortinu og þeir hafa sömu forgangsröðun í samkvæmt miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrr úr gildi.
Skiptamiði
- Skiptamiði hefur gildistíma frá degi og til dags. Miðinn gildir frá og með upphafsdegi og til og með lokadegi, og er eingöngu hægt að nota miðann á gildstíma hans.
- Hver skiptamiði getur innihaldið mismikinn fjölda skipa, í hvert skipti sem heimild fæst með skiptamiða lækkar inneign hans um 1 skipti.
- Þegar inneign skiptamiða verður 0 er ekki lengur hægt að nota miðann og miðinn er fjarlægður sjálfkrafa af kortinu.
- Hægt er að nota miðann bæði í „Aðalvalmynd“ og einnig „Greitt fyrir annan“ ef viðkomandi hliðarregla heimilar það:
- BUS: Ef heimilt er að nota miðann verður að líða 5 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- GATE: Ef heimilt er að nota miðann í „Aðalvalmynd“ verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- GATE: Ef heimilt er að nota miðann „Greitt fyrir annan“ þá þarf enginn tími að líða á milli notkunar, en þegar inneignin verður 0 er ekki lengur hægt að nota miðann og hann er fjarlægður af kortinu.
- Ef fleiri en einn skiptamiði eru á kortinu þá er sá skiptamiði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef tveir skiptamiðar eru á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrr úr gildi.
...
- ATH. hér eru um að ræða fyrri samningsmiðann þ.e. ekki þann sem tengist Samningakerfinu.
- Samningsmiðinn inniheldur eftirfarandi stillingar:
- Gildir til og með ákveðins dags, hægt er að nota miðann ótakmarkað þar til gildistíminn er útrunninn þá er ekki hægt að nota hann.
- Samningsnúmer, það hefur ekki áhrif á leyfilega notkun á miðanum.
- Sessions“, ???
- Fjölda skipta, þ.e. hægt er að skilgreina leyfilegan hámarks fjölda skipta (eða eininga). Ef gildi er 0 þá er leyfileg notkun ótakmörkuð á gildistímanum, en ef gildið er stærra en 0 þá er gildið lækkað um 1 við hverja notkun nema ef viðkomandi ferð „kostar“ 3 einingar þá er gildið lækkað um 3 einingar. Gildið getur aldrei orðið minna en 0, en þegar það er orðið 0 þ.e. engar eftirstöðvar eftir þá er miðinn fjarlægður.
- BUS: Ef heimilt er að nota miðann samkvæmt miðareglunni verður að líða 5 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- GATE: Ef heimilt er að nota miðann í „Aðalvalmynd“ samkvæmt miðareglunni verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- GATE: Ef heimilt er að nota miðann „Greitt fyrir annan“ samkvæmt miðareglunni þá þarf enginn tími að líða á milli notkunar. ATH. rétt er að miðaregla heimilaði ekki þessa virkni.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni samningsmiði er á kortinu þá er sá miði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni samningsmiði er á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrst úr gildi.
Samningskerfismiði
- ATH. hér eru um að ræða samningsmiðann sem tengist Samningakerfinu.
- Samningskerfismiðinn hefur gildistíma frá degi og til dags. Miðinn gildir frá og með upphafsdegi og til og með lokadegi.
- Hægt er að nota miðann ótakmarkað á gildistíma hans, en þó fer það eftir miðareglu:
- Miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann í „Aðalvalmynd“ verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- Miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann „Greitt fyrir annan“ þá þarf enginn tími að líða á milli notkunar.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni samningskerfismiði eru á kortinu þá er sá miði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni samningskerfismiði eru á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrr úr gildi.
...