Nýr; þegar umsókn er samþykkt stofnast sjálfkrafa samningur með þessa stöðu.
Í bið; notandi getur sett samning í þessa stöðu ef hann hefur stöðunaNýreðaÍ vinnslu.
Í vinnslu; notandi getur sett samning í þessa stöðu ef hann hefur stöðunaNýreðaÍ bið.
Virkur; samningur fær þessa stöðu þegar notandi velur að virkja hann. Samningar með þessa stöðu birtast í verkáætlun og heimsóknir þeirra birtast í verkefnalistum heimaliða í appinu.
Óvirkur, samningur fær þessa stöðu þegar notandi velur að óvirkja samninginn tímabundið. Heimsóknir samninga með þessa stöðu birtast ekki í verkefnalistum heimaliða í appinu og heldur ekki í verkáætlun nema slíkt sé sérstaklega valið.
Hætt við, samningur fær þessa stöðu þegar notandi velur að hætta við hann þ.e. ljúka honum. Heimsóknir samninga með þessa stöðu birtast hvorki í verkáætlun né í verkefnalistum heimaliða í appinu.
Með því að velja hnappinn [Breyta stöðu] þá birtist valmyndin hér til hliðar, þar sem notandi velur að breyta stöðu samnings í annað hvort Í vinnslu eða Í bið og því næst hnappinn [Vista] til að staðfesta breytinguna eða hnappinn [Hætta við] til að hætta við.