Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.


Í þessum kerfishluta eru umsóknir stofnaðar og skráðar upplýsingar þeim tengdum, metin er þjónustuþörf hvers umsækjanda og ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði um þjónustu er umsókninni hafnað með viðeigandi ástæðu og skýringum.

Ef umsækjandi uppfyllir skilyrði um heimaþjónustu er skráð samþykkt þjónustuþörf hans á umsóknina þ.e. þjónustuþættir og tíðni þeirra til að uppfylla þá þjónustu sem samþykkt hefur verið. Síðan er umsóknin samþykkt og við það stofnast sjálfkrafa þjónustusamningur á umsækjandann sem inniheldur þá þjónustuþætti sem samþykktir voru.

Ekki er hægt að breyta umsókn sem búið er að samþykkja, en hægt er að eyða henni ef ekki er búið að virkja þjónustusamninginn, sjá hér.




Þegar umsóknir eru valdar birtist myndin hér til hægri sem inniheldur eftirfarandi aðgerðir:

  • Ný umsókn,  þessi aðgerð er valin þegar stofna á nýja umsókn.
  • Allar umsóknir, þessi aðgerð er valin þegar finna á umsókn tiltekins þjónustuþega.
  • Sniðmát, þessi aðgerð er valin ef vinna á með sniðmát.

Rauða efsta línan (hausinn) birtist alltaf og inniheldur hann alltaf sömu upplýsingar:

  • Heim;  þegar þetta er valið birtist aðalvalmynd CareOn.     
  • Heimaþjónstukerfi;  aðeins fyrirsagnartexti.
  • Grensás HQ,  hér birtist sú starfsstöð sem valin er. 
  • Jóhann Grétarsson;  hér birtist nafn notanda.

Sjá hér upplýsingar um að skoða og vinna með valda umsókn.


Hver og ein umsókn tilheyrir einni starfsstöð, munið að hafa rétta starfsstöð þegar umsókn er stofnuð, sjá hér hvernig breyta á um starfsstöð.

Sjá hér upplýsingar um skoða og vinna með valda umsóknviðskiptatré og skipulag í CareOn.