Yfirlit yfir umsóknirÞegar skoða á tiltekna umsókn er þessi aðgerð valin, við það birtist listi yfir allar umsóknir sem skráðar hafa verið fyrir valda starfsstöð. Hægt er að birta allar aðeins umsóknir skráðar á ákveðinn umsækjanda með því að skrá nafn hans í reitinn Umsækjandi eða kennitölu hans í reitinn Kennitala umsækjanda. Hægt að birta aðeins umsóknir með ákveðna stöðu með því að velja stöðuna út fellilista í dálkinum Staða. Einnig er hægt að birta aðeins umsóknir sem tilheyra ákveðnu hverfi með því að velja hverfi úr fellilista í dálkinum Tilheyrir hverfi. Sjálfvalið er að birta aðeins 10 umsóknir á síðu, en hægt er að velja á milli 25, 50 og 100 umsóknir með því að smella á viðkomandi tölu hægra megin neðst á myndinni. Vinstra megin neðst má sjá hvaða síðu er verið að skoða og hægt er að velja aðra síðu með að því að smella á númer hennar eða fletta á næstu síðu eða til baka ef þú ert ekki staddur á síðu 1. Aðeins umsóknir skráðar á valda starfsstöð sem birtist í efstu rauðu línunni til hægri, í þessu tilviki birtast, í myndinni til hliðar er valin starfsstöð Grensás HQ. Ef notandi hefur aðgangsheimild þá getur hann breytt um starfsstöð og skoðað (stofnað) umsóknir skráðar á aðra starfsstöð, sjá hér. NánarTil að skoða eða vinna frekar með valda umsókn er hnappurinn Nánar valinn valinn, sjá frekari upplýsingar hér. Bæta viðEf stofna á nýja umsókn er græni hnappurinn Bæta við valinn, sjá frekari upplýsingar hér. |
Page Comparison
General
Content
Integrations