Efnisyfirlit:
Hér til hliðar er valmynd heimaþjónustukerfisins CareOn.
Til að breyta upplýsingum um þig og lykilorði þá velur þú nafnið þitt efst í hæga horni skjámyndarinnar, við það birtist felli listi með „Uppfæra prófil“ og „Útskrá“. Þar velur þú „Uppfæra prófil“.
Í valmyndinni birtast kassar þar sem hver kassi er tiltekin kerfishluti af CareOn;
Umsóknir
Í þessum kerfishluta eru umsóknir stofnaðar og skráðar upplýsingar þeim tengdum, metin er þjónustuþörf hvers umsækjanda og ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði um þjónustu er umsókninni hafnað með viðeigandi ástæðum. Ef umsækjandi uppfyllir skilyrði um heimaþjónustu er skráð samþykkt þjónustuþörf hans og umsóknin síðan samþykkt.
Þjónustusamnigar
Í þessum kerfishluta er unnið með þjónustusamninga og þjónustuáætlanir. Þegar umsókn er samþykkt stofnast sjálfkrafa þjónustusamningur fyrir umsóknina. Búin er til ein eða fleiri þjónustuáætlun fyrir hvern þjónustusamning eftir hvort margar vaktir þarf til að sinna viðkomandi þjónustuþega.
Hver þjónustuáætlun inniheldur heimsóknir til viðkomandi þjónustuþega, framkvæmdardagur og framkvæmdartími er þekktur fyrir hverja heimsókn, hvaða heimaliði á að sinna henni og hvaða framkvæma á í viðkomandi heimsókn.
Mögulega er ekki hægt að uppfylla alla samþykkta þörf og í þeim tilvikum inniheldur þjónustuáætlunin ekki alla þjónustuþætti eða minna umfang en samþykkt var fyrir viðkomandi þjónustuþega.
Ef breyta þarf mikið þjónustuáætlun er einfalt að útbúa nýja áætlun og óvirkja eldri áætlun.
Verkáætlanir
Í þessum kerfishluta er unnið með verkáætlanir, brugðist við öllum nauðsynlegum breytingum á áætlunum s.s. fella niður heimsókn, breyta framkvæmdartíma heimsóknar, setja annan heimaliða á heimsókn, bregðast við fjarveru heimaliða þ.e. færa heimsóknir yfir á aðra heimaliða eða fella niður.
Endurmat
Í þessum kerfishluta er þjónustuþörf þjónustuþega endurmetin. Reglulega þarf að framkvæma endurmat fyrir þá sem fá heimaþjónustu. Þessi kerfishluti er ekki tilbúin.
Þegar valið er að framkvæma endurmat fyrir þjónustuþega þá verur til endurmat fyrir hann. Þegar niðurstaða endurmats liggur fyrir er hún skráð í endurmatið og það annað hvort hafnað eða samþykkt. Ef niðurstaðan er að þjónustuþeginn uppfyllir ekki lengur skilyrði um heimaþjónustu þá er niðurstaða endurmatsins HÖFNUN, ef aftur á móti hann uppfyllir skilyrði þá er samþykkt þörf hans skráð og endurmatið fær stöðuna SAMÞYKKT.
Þegar endurmat er samþykkt verður til nýr þjónustusamningur. Ef þjónustuþörfin breytist ekkert þá þarf notandi ekki að framkvæma nýja þjónustuáætlun. Ef þjónustuþörfin breytist lítið þá þarf notandi ekki að útbúa nýja þjónustuáætlun fyrir alla þjónustuna, heldur getur hann afritað núverandi þjónustuáætlun yfir í nýja og þarf aðeins að bæta við nýrri þjónustu eða fella niður ef hætta á einhverri þjónustu.
Greiningartæki
Í þessum kerfishluta er unnið með upplýsingar CareOn, bæði með OLAP greiningartækninni og einnig hefðbundinni skýrslugerð.
CareOn mun halda utan um mikið magn að gögnum sem eru mjög verðmætar upplýsingum fyrir sveitarfélög og stofnanir. Þær munu m.a. skapa þeim mikið tækifæri til að bæta þjónustuna og auka hagkvæmni við framkvæmd þjónustunnar.
Stillingar
Í þessum kerfishluta getur notandi skráð og breytt ýmsum grunnstillingum kerfisins, s.s. heimaliðum, þjónustuþáttum, þjónustuflokkum, þjónustuþörf, vöktum, ýmsum ástæðum, viðbótarupplýsingum o.fl.
Öryggisstillingar
Í þessum hluta eru aðgerðir fyrir öryggisstillingar kerfisins.
Add Comment