Í þessum kerfishluta eru umsóknir stofnaðar og skráðar upplýsingar þeim tengdum, metin er þjónustuþörf hvers umsækjanda og ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði um þjónustu er umsókninni hafnað með viðeigandi ástæðu og skýringum. Ef umsækjandi uppfyllir skilyrði um heimaþjónustu er skráð samþykkt þjónustuþörf hans þ.e. þjónustuþættir eru skráðir í umsóknina og tíðni hver og eins samkvæmt því sem samþykkt er, síðan er umsóknin samþykkt. Um leið og umsóknin er samþykkt er ekki lengur hægt að breyta henni og um leið verður sjálfkrafa til þjónustusamningur á umsækjandann sem inniheldur þá þjónustuþætti sem samþykktir voru ásamt tíðni þeirra. Frekari upplýsingar um umsóknir: |
General
Content
Integrations
Add Comment