Hér eru aðgerðir taldar upp í þeirri röð sem þær eru framkvæmdar og stutt lýsing á hverri framkvæmd. Ýtarlegri lýsingu fyrir hverja aðgerð er að finna síðar í handbókinni.
Umsóknir
Byrjað er á að nýskrá umsókn um í kerfið, ferlið við að stofna og afgreiða hana er eftirfarandi:
Af ofangreindum ellefu liðum er nauðsynlegt að framkvæma þá sem eru feitletraðir en aðra ekki, þó er nauðsynlegt að annað hvort hafna eða samþykkja allar umsóknir. | Skráning umsóknar ekki hafin: Skráning langt komin: |
Þjónustusamningar
Eftir að umsókn hefur verið samþykkt er næsta skref að útbúa þjónustusamning og gera þjónustuáætlun. Byrjað er á þjónustusamninginum:
Hér er einnig hægt að skrá/breyta neðangreindum atriðum en þó ekki nauðsynlegt: 3. Umsækjandi/nánar; hægt að breyta upplýsingum umsækjanda ef þörf er á t.d. heimilisfangi og skráið upplýsingar um síma og netfang. 4. Umsækjandi/viðbótarupplýsingar; merkið við viðbótarupplýsingar sem eiga við umsækjandann. 5. Umsækjandi/tengiliðir; hér er hægt að skrá nýja tengiliði fyrir umsækjanda og breyta upplýsingum núverandi tengiliða umsækjanda. 6. Viðbótarupplýsingar þjónustusamnings; hér er hægt að skrá viðbótarupplýsingar fyrir þennan þjónustusamning og breyta skráðum upplýsingum. Nauðsynlegt er að yfirfara þjónustuþætti samningsins: 7. Þjónustuþættir; mikilvægt er að yfirfara og leiðrétta umfang hvers þjónustuþáttar og einnig framkvæmdalýsingu ef þörf er á. Umfangið er staðlað og þarf því alls ekki að vera rétt fyrir viðkomandi þjónustusamning. Leiðréttið fyrir alla þjónustuþættina óháð hvort hægt er að uppfylla viðkomandi þátt eða ekki, við það verður umfang fyrir samþykkta þjónustuþörf rétt. Veljið aðgerðarhnappinn „Breyta þjónustuþætti“ við þann þjónustuþátt sem breyta þarf. Ef þjónustuþættir samningsins eru fyrir margar vaktir er hægt að sía á eina ákveðna vakt og birtast þá aðeins þjónustuþættir skráðir á hana. Þegar ofangreindu er lokið er ný áætlun stofnuð með því að velja hnappinn "Bæta við áætlun" |
Add Comment