Skip to end of metadata
Go to start of metadata
You are viewing an old version of this page. View the current version.
Compare with Current
View Page History
« Previous
Version 4
Next »
Hér eru aðgerðir taldar upp í þeirri röð sem þær eru framkvæmdar og stutt lýsing á hverri framkvæmd. Ýtarlegri lýsingu fyrir hverja aðgerð er að finna síðar í handbókinni.
Yfirlit
Umsóknir
Byrjað er á að nýskrá umsókn um í kerfið, ferlið við að stofna og afgreiða hana er eftirfarandi: - Stofnið umsókn með því að velja aðgerðina „Ný umsókn“ og skrá kennitölu umsækjanda.
- Hverfi; skráið umsóknina á það hverfi sem hún á að tilheyra.
- Umsækjandi/nánar; breytið upplýsingum umsækjanda ef þörf er á t.d. heimilisfangi og skráið upplýsingar um síma og netfang.
- Umsækjandi/viðbótarupplýsingar; merkið við viðbótarupplýsingar sem eiga við umsækjandann.
- Umsækjandi/tengiliðir; hér er hægt að skrá nýja tengiliði fyrir umsækjanda og breyta upplýsingum núverandi tengiliða umsækjanda.
- Viðbótarupplýsingar; hér er hægt að skrá viðbótarupplýsingar umsóknar og breyta því sem skráð hefur verið.
- Staða umsóknar; setjið umsóknina í stöðuna „Í mati“ þegar matið hefst.
- Þjónustuþörf; þegar þjónustumatinu er lokið veljið þá þjónustuþörf sem umsækjandinn er metinn hafa.
- Þjónustuþættir; þegar þjónustumatinu er lokið og metið er að umsækjandi á rétt á heimaþjónustu þá eru þeir þjónustuþættir og tíðni þeirra skráð í umsóknina ásamt hvaða vakt á að sinna hverjum þjónustuþætti. Ef t.d. tvær vaktir þurfa að sinna sama þjónustu-þættinum er hann skráður tvisvar sinnum þ.e. fyrir hvora vakt fyrir sig.
- Umsón hafnað; ef umsókn er hafnað þá er viðeigandi aðgerð valin.
- Umsókn samþykkt; ef umsókn er samþykkt þá er viðeigandi aðgerð valin. Við að samþykkja umsókn stofnast sjálfkrafa þjónustusamningur fyrir umsóknina.
Af ofangreindum ellefu liðum er nauðsynlegt að framkvæma þá sem eru feitletraðir en aðra ekki, þó er nauðsynlegt að annað hvort hafna eða samþykkja allar umsóknir. | Skráning umsóknar ekki hafin:
Skráning langt komin:
|
Þjónustusamningar
Eftir að umsókn hefur verið samþykkt er næsta skref að útbúa þjónustusamning og gera þjónustuáætlun. Byrjað er á þjónustusamninginum: - Staða samnings; byrjið á að breyta stöðu samnings í „Í vinnslu“ þegar vinnsla við hann hefst.
- Gildistími samnings; skráið gildistíma sem samningurinn á að hafa, ef hann á að vera ótímabundinn veljið þá til dagsetningar = 31. desember 2020.
Hér er einnig hægt að skrá/breyta neðangreindum atriðum en þó ekki nauðsynlegt: 3. Umsækjandi/nánar; hægt að breyta upplýsingum umsækjanda ef þörf er á t.d. heimilisfangi og skráið upplýsingar um síma og netfang. 4. Umsækjandi/viðbótarupplýsingar; merkið við viðbótarupplýsingar sem eiga við umsækjandann. 5. Umsækjandi/tengiliðir; hér er hægt að skrá nýja tengiliði fyrir umsækjanda og breyta upplýsingum núverandi tengiliða umsækjanda. 6. Viðbótarupplýsingar þjónustusamnings; hér er hægt að skrá viðbótarupplýsingar fyrir þennan þjónustusamning og breyta skráðum upplýsingum. Nauðsynlegt er að yfirfara þjónustuþætti samningsins: 7. Þjónustuþættir; mikilvægt er að yfirfara og leiðrétta umfang hvers þjónustuþáttar og einnig framkvæmdalýsingu ef þörf er á. Umfangið er staðlað og þarf því alls ekki að vera rétt fyrir viðkomandi þjónustusamning. Leiðréttið fyrir alla þjónustuþættina óháð hvort hægt er að uppfylla viðkomandi þátt eða ekki, við það verður umfang fyrir samþykkta þjónustuþörf rétt. Veljið aðgerðarhnappinn „Breyta þjónustuþætti“ við þann þjónustuþátt sem breyta þarf. Ef þjónustuþættir samningsins eru fyrir margar vaktir er hægt að sía á eina ákveðna vakt og birtast þá aðeins þjónustuþættir skráðir á hana. Þegar ofangreindu er lokið er ný áætlun stofnuð með því að velja hnappinn "Bæta við áætlun" | |
Bæta við þjónustuáætlun
|
|
---|
Þegar valið er að bæta við þjónustuáætlun birtist glugginn hér til hægri. Vinstra megin undir Óúthlutað birtast allir þjónustuþættir samningsins og hægra megin undir Áætlun birtast allir þjónustuþættir sem áætlunin á að innihalda, sem er tómt í byrjun. - Vakt; byrjið á að velja vakt sem áætlunin er fyrir. , þá fær áætlunin sjálfkrafa heiti vaktarinnar.
- Nafn; áætlunin fær sjálfkrafa heiti vaktarinnar sem áætlunin er fyrir og því þarf ekki að velja nafn. Ef það á ekki við þá er hægt að skrá heiti áætlunar hér.
- Sía fyrir vakt; ef þjónustuþættir samnings eru skráðir á fleiri en eina vakt er hægt að birta aðeins þjónustuþætti þeirrar vaktar undir Óráðstafað með því að sía á viðkomandi vakt hér.
- Ef áætlunin á að innihalda alla þjónustuþætti fyrir valda vakt þá er hnappurinn allir valinn, við það flytjast allir þjónustuþættir frá vinstri til hægri undir áætlun. Sjá skjáskotið hér að neðan.
- Ef nýja áætlunin á ekki að innihalda þjónustuþátt sem er undir áætlun þá er hægt að fjarlægja hann með því að velja rauða hnappinn „Fjarlægja“ við viðkomandi þjónustuþátt.
- Ef tíðin þjónustuþáttar er ekki rétt undir áætlun þá er hægt að velja bláa textann „Breyta framkvæmdar tíðni“ og velja nýja rétta tíðni fyrir viðkomandi þjónustuþátt.
- Hætt við; með því að velja þennan hnapp er hætt við að bæta við áætlun.
Bæta við; þegar áætlunin inniheldur rétta þjónustuþættir (hægra megin) veljið þennan hnapp til að stofna áætlunina. | |
Add Comment