Hvar eru inneignir geymdar?
Skipta má inneignum korthafa í CTS kerfinu í tvo hópa eftir hvar inneign korthafa af viðkomandi miðum er geymd þ.e. þeir skiptast annars vegar í kortamiða og hins vegar í reikningsmiða.
- Kortamiðar eru geymdir á CTS kortunum sjálfum þ.e. í örgjafa kortsins. Með því móti getur öll notkun miðans verið mjög hraðvirk og engar truflanir tengdar góðri eða slæmri nettengingu haft áhrif þ.e. nettenging þarf ekki að vera til staðar þegar miðinn er notaður.
- Reikningsmiðar eru aftur á móti geymdir miðlægt á kortareikningi viðkomandi korts þ.e. líkja má reikningsmiðum við inneignir debetkorta þ.e. ekki er hægt að nota inneignina í bankanum nema netsamband sé til staðar til að sannreyna inneign kortsins, sama á við um reikningsmiða þ.e. netsamband þarf til að sannreyna inneign miðans í CTS kerfinu.
Hvar er hægt að nota inneignir?
Mjög misjafnt er hvar hægt er að nota miða í CTS kerfinu, en almenna reglan er sú að hægt er að nota miða hjá þeim sem leggja þá til. T.d. leggur Reykjavíkurborg til margar tegundir sundmiða og hægt er að nota þá í sundlaugum borgarinnar, sama er að segja um Garðabæ, og fleiri sveitarfélög þ.e. hægt er að nota þeirra sundmiða í þeirra sundlaugum. En ekki er hægt að nota sundmiða eins sveitarfélags í sundlaugum annars sveitarfélags. Fjarðabyggð leggur t.d. einnig til fjölda farmiða sem hægt er að nota á CTS kerfinu í strætisvögnum á Austurlandi en þó er ekki hægt að nota þá í sundlaugum Fjarðabyggðar og ekki heldur er hægt að nota sundmiða Fjarðabyggðar í strætisvögnum Austurlands.
Sem sagt í strætisvögnum, sundlaugum, líkamsræktastöðvum og öðrum stöðum sem CTS kerfið er notað eru í gildi svokallaðar miðareglur fyrir hvern þjónustustað sem segir nákvæmlega til um hvaða miðar gilda á viðkomandi stað og ýmislegt annað tengt notkun miðanna.
Virkni inneigna er mjög fjölbreytt
Inneignir (miðar) í CTS kerfinu hafa mjög fjölbreytta virkni og jafnframt er einfalt að bæta við nýjum eiginleikum. Hér eru nokkur dæmi um virkni miða:
Tímabilsmiði
- Tímabilsmiði hefur gildistíma frá degi og til dags. Miðinn gildir frá og með upphafsdegi og til og með lokadegi. Ef upphafsdagur er fram í tímann er ekki hægt að nota miðann fyrr en á upphafsdeginum. T.d. ef korthafi er með á korti sínu ársmiða í sund sem rennur út eftir 20 daga, getur hann keypt nýjan ársmiða á kortið sitt og látið gildistíma hans hefjast eftir 20 daga.
- Hægt er að nota miðann ótakmarkað á gildistíma hans.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni tímabilsmiði eru á sama kortinu þá er sá tímabilsmiði notaður sem hefur meiri forgang samkvæmt miðareglu fyrir viðkomandi þjónustustað.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni tímabilsmiði eru á sama kortinu og þeir hafa sömu forgangsröðun samkvæmt miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrr úr gildi.
Skiptamiði
- Skiptamiði hefur gildistíma frá degi og til dags. Miðinn gildir frá og með upphafsdegi og til og með lokadegi, og er eingöngu hægt að nota miðann á gildstíma hans.
- Hver skiptamiði getur innihaldið mismikinn fjölda skipa, í hvert skipti sem heimild fæst með skiptamiða lækkar inneign hans um 1 skipti.
- Þegar inneign skiptamiða verður 0 er ekki lengur hægt að nota miðann og miðinn er fjarlægður sjálfkrafa af kortinu.
- Hægt er að nota miðann bæði í „Aðalvalmynd“ og einnig „Greitt fyrir annan“ ef viðkomandi hliðarregla heimilar það:
- BUS: Ef heimilt er að nota miðann verður að líða 5 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- GATE: Ef heimilt er að nota miðann í „Aðalvalmynd“ verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- GATE: Ef heimilt er að nota miðann „Greitt fyrir annan“ þá þarf enginn tími að líða á milli notkunar, en þegar inneignin verður 0 er ekki lengur hægt að nota miðann og hann er fjarlægður af kortinu.
- Ef fleiri en einn skiptamiði eru á kortinu þá er sá skiptamiði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef tveir skiptamiðar eru á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrr úr gildi.
Breytilegir miðar
Starfsmannamiði
- Starfsmannamiði hefur gildistíma til og með ákveðins dags frá því hann er settur á kort. Hægt er að nota miðann ótakmarkað á meðan gildistími hans er ekki runninn út.
- Miðinn getur einnig innihaldi númer staðar sem er starfsstöð korthafa, númerið getur einnig verið 0 eða númer annarrar starfsstöðvar.
- Miðaregla „Aðalvalmynd“: Virknin er mismunandi eftir hvort miðinn er notaður á starfsstöð korthafa eða ekki:
- Ef miðinn er notaður á starfsstöð korthafa þá fæst aðgangur og „opnunar“-færsla er mynduð en ekki notkunar-færsla. Og einnig er hægt að nota kortið strax aftur án þess að bíða í einhvern tíma og ný „opnunar“-færsla myndast, þetta er hægt að endurtaka án takmarkana.
- Ef miðinn er notaður á starfsstöð sem er ekki vinnustaður korthafa er virknin eins og um tímabilsmiða sé að ræða þ.e. aðgangur fæst og notkunar-færsla er mynduð. Hægt er að nota miðan aftur en þó verður að líða 30 mín. á milli notkunar (eða sá tími sem skilgreindur er).
- Miðaregla „Greiða fyrir annan“: ATH. rétt er að miðareglan heimilaði ekki þessa virkni, en ef hún gerir það er virknin mismunandi eftir hvort miðinn er notaður á starfsstöð korthafa eða ekki:
- Ef miðinn er notaður á starfsstöð korthafa þá fæst aðgangur og „opnunar“-færsla er mynduð. Hægt að endurtaka á takmarkana og enginn biðtími þarf að var á milli notkunar.
- Ef miðinn er notaður á starfsstöð sem er ekki vinnustaður korthafa fæst aðgangur og notkunar-færsla er mynduð. Hægt er að endurtaka án takmarkana og enginn biðtími þarf að vera á milli notkunar.
- Ef fleiri en einn starfsmannamiði eru á kortinu þá er sá miðinn notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef fleiri en einn starfsmannamiði eru á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem: a) Er með sama númer og starfsstöðin b) Ef báðir eða hvorugur miðinn er með sama númer og starfsstöðin þá er miðinn notaður sem rennur fyrr úr gildi.
Tilboðsmiði (Vikumiði? Ekki útfærður í nýjustu útgáfunni )
- Tilboðsmiði er með flestar stillingar, þ.e. hann inniheldur:
- Gildir til og með ákveðins dags, ekki hægt að nota miðan eftir að gildistíminn er útrunninn.
- Gildir valda daga vikunnar, aðeins hægt að nota á völdum vikudögum.
- Gildir aðeins frá ákveðnum tíma dags og í ákveðinn fjölda klst. (½ klst.lágmark), aðeins hægt að nota innan þessa tíma dags.
- Einnig er hægt að tilgreina númer þjónustustaðar sem miðinn gildir eingögnu á, ef hann á að gilda á öllum þjónustustöðum er númerið = 0. Ef ákveðinn þjónustustaður er skilgreindur í miðanum gildir hann eingöngu á viðkomandi þjónustustað, annars á öllum.
- Allir ofangreindir liðir a)-d) verða að vera uppfylltir til að hægt sé að nota miðann.
- Hægt er að nota miðann ótakmarkað á gildistíma hans, en þó fer það eftir miðareglu:
- Miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann í „Aðalvalmynd“ verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- Miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann „Greitt fyrir annan“ þá þarf enginn tími að líða á milli notkunar. ATH. rétt er að miðareglan heimilaði ekki þessa virkni.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni tilboðsmiði er á kortinu þá er sá miði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni tilboðsmiði er á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrst úr gildi.
Svæðamiði
- ATH. svæðamiða er aðeins hægt að nota í BUS.
- Svæðamiði hefur gildistíma til og með ákveðins dags frá því hann er settur á kort. Hægt er að nota miðann ótakmarkað á meðan gildistími hans er ekki runninn út, en líða verður lágmark 5 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- Hægt er að skilgreina mörg svæði í einum og sama svæðamiðanum og er eingöngu hægt að nota svæðamiðann innan þeirra svæða.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni svæðamiði er á kortinu þá er sá miði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni svæðamiði er á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrst úr gildi.
Samningsmiði
- ATH. hér eru um að ræða fyrri samningsmiðann þ.e. ekki þann sem tengist Samningakerfinu.
- Samningsmiðinn inniheldur eftirfarandi stillingar:
- Gildir til og með ákveðins dags, hægt er að nota miðann ótakmarkað þar til gildistíminn er útrunninn þá er ekki hægt að nota hann.
- Samningsnúmer, það hefur ekki áhrif á leyfilega notkun á miðanum.
- Sessions“, ???
- Fjölda skipta, þ.e. hægt er að skilgreina leyfilegan hámarks fjölda skipta (eða eininga). Ef gildi er 0 þá er leyfileg notkun ótakmörkuð á gildistímanum, en ef gildið er stærra en 0 þá er gildið lækkað um 1 við hverja notkun nema ef viðkomandi ferð „kostar“ 3 einingar þá er gildið lækkað um 3 einingar. Gildið getur aldrei orðið minna en 0, en þegar það er orðið 0 þ.e. engar eftirstöðvar eftir þá er miðinn fjarlægður.
- BUS: Ef heimilt er að nota miðann samkvæmt miðareglunni verður að líða 5 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- GATE: Ef heimilt er að nota miðann í „Aðalvalmynd“ samkvæmt miðareglunni verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- GATE: Ef heimilt er að nota miðann „Greitt fyrir annan“ samkvæmt miðareglunni þá þarf enginn tími að líða á milli notkunar. ATH. rétt er að miðaregla heimilaði ekki þessa virkni.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni samningsmiði er á kortinu þá er sá miði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni samningsmiði er á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrst úr gildi.
Samningskerfismiði
- ATH. hér eru um að ræða samningsmiðann sem tengist Samningakerfinu.
- Samningskerfismiðinn hefur gildistíma frá degi og til dags. Miðinn gildir frá og með upphafsdegi og til og með lokadegi.
- Hægt er að nota miðann ótakmarkað á gildistíma hans, en þó fer það eftir miðareglu:
- Miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann í „Aðalvalmynd“ verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- Miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann „Greitt fyrir annan“ þá þarf enginn tími að líða á milli notkunar.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni samningskerfismiði eru á kortinu þá er sá miði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni samningskerfismiði eru á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrr úr gildi.
Opinn tímabilsmiði
- Opnir tímabilsmiðar hafa skilgreindan gildistíma annars vegar í klst. sem getur verið minnst ½ klst. og upp í margar klst. (jafnvel mánuðir/ár?) og hins vegar ákveðinn dag (engar takmarkanir) þ.e. miðinn gildir að hámarki til og með þess dags ef hann er ekki notaður. Dæmi um slíka miða er t.d. skíðamiði sem gildri í 3 mánuði en aðeins í 4 klst. eftir að búið er að virkja miðann.
- Ef reynt er að nota opinn tímabilsmiða í fyrsta sinn (óvirkur) eftir að gildistími (ákveðinn dagur) hans er útrunninn fæst höfnun og ekki er hægt að nota miðann.
- Miðinn er óvirkur þegar hann er settur á kort en við fyrstu notkun verður hann virkur og um leið fær miðinn nýjan gildistíma þ.e. þá verður gildistími hans = notkunartíminn núna + klst. sem hann á að gilda í.
- Eftir að búið er að virkja opinn tímabilsmiða þá gildir miðinn til nákvæmlega ákveðins tíma innan ákveðins dags t.d. 8.mars 2016 kl. 16:05 og ekki er hægt að nota miðann eftir þann tíma þó svo aðeins sé um að ræða ½ mínútu.
- Hægt er að nota miðann ótakmarkað á gildistíma hans, en þó fer það eftir miðareglu:
- Miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann í „Aðalvalmynd“ verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- Miðaregla: Ef heimilt er að nota miðann „Greitt fyrir annan“ þá þarf enginn tími að líða á milli notkunar. ATH. rétt er að miðareglan heimilaði ekki þessa virkni.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni opinn tímabilsmiði er á kortinu þá er sá miði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni opinn tímabilsmiði er á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrst úr gildi.
Rafeyrir
- Miðinn rafeyrir hefur gildistíma til dags en ekki frá degi þ.e. hann gildir frá þeim tíma sem miðinn er settur á kort. Eftir að gildistíminn er runnin út er ekki hægt að nota eftirstöðvar rafeyrisins.
- Rafeyrir er í eðli sínu peningar og getur miðinn því innihaldið mismunandi fjárhæðir.
- Þegar miðinn er notaður getur verið notuð mismunandi fjárhæð í hvert skipti, en inneign rafeyris er lækkuð um þá fjárhæð sem notuð er. Inneign rafeyris getur aldrei orðið minni en 0.
- Þegar inneign rafeyris verður 0 þ.e. búið er að nota alla inneignina er ekki lengur hægt að nota miðann og miðinn er fjarlægður sjálfkrafa af kortinu.
- Hægt er að nota rafeyrir bæði í „Aðalvalmynd“ og einnig „Greitt fyrir annan“ ef viðkomandi hliðarregla heimilar það:
- Ef heimilt er að nota rafeyrir í „Aðalvalmynd“ verður að líða 30 mín. á milli notkunar á miðanum (eða sá tími sem skilgreindur er).
- Ef heimilt er að nota rafeyir „Greitt fyrir annan“ þá þarf enginn tími að líða á milli notkunar, en þegar inneignin verður 0 er ekki lengur hægt að nota miðann og hann er fjarlægður af kortinu.
- Ef fleiri en einn miði af gerðinni rafeyrir eru á kortinu þá er sá miði notaður sem hefur meiri forgang í miðareglu fyrir viðkomandi útstöð.
- Ef tveir eða fleiri miðar af gerðinni rafeyrir eru á kortinu og hafa sömu forgangsröðun í miðareglunni er sá miði notaður sem rennur fyrst úr gildi.