Þjónustusamningar

Hvað

Myndir

  • Í þessum kerfishluta er unnið með þjónustusamninga og þjónustuáætlanir. Þegar umsókn er samþykkt stofnast sjálfkrafa þjónustusamningur fyrir umsóknina. Búin er til ein eða fleiri þjónustuáætlun fyrir hvern þjónustusamning eftir hvort margar vaktir þarf til að sinna viðkomandi þjónustuþega.
  • Hver þjónustuáætlun inniheldur heimsóknir til viðkomandi þjónustuþega, framkvæmdardagur og framkvæmdartími er þekktur fyrir hverja heimsókn, hvaða heimaliði á að sinna henni og hvað framkvæma á í viðkomandi heimsókn.
  • Mögulega er ekki hægt að uppfylla alla samþykkta þörf og í þeim tilvikum inniheldur þjónustuáætlunin ekki alla þjónustuþætti eða minna umfang en samþykkt var fyrir viðkomandi þjónustuþega.
  • Ef breyta þarf mikið þjónustuáætlun er einfalt að útbúa nýja áætlun og óvirkja eldri áætlun.
  • Þegar skoða á þjónustusamninga er þessi aðgerð valin, við það birtist listi yfir alla þjónustusamninga fyrir valda þjónustumiðstöð. Ef notandi hefur aðgangsheimild getur hann valið aðra þjónustumiðstöð (við hliðina á nafninu þínu í rauðu línunni) og birt þjónustusamninga hennar.
  • Hægt er að birta alla þjónustusamninga fyrir ákveðinn þjónustuþega með því að skrá nafn hans í reitinn [Þjónustuþegi] eða [Kennitölu] hans í kennitölureitinn.
  • Hægt að birta aðeins þjónustusamninga með ákveðna [Stöðu] með því að velja viðkomandi stöðu. Hægt er að raða samningum eftir stöðu þeirra, hvenær samningur var stofnaður, upphafsdegi samnings og lokadegi samnings með því að smella með músinni á fyrirsögn viðeigandi dálks. Til að skoða eða vinna frekar með valinn þjónustusamning er hnappurinn [Nánar] valinn, þá birtist valmyndin hér að neðan.

Eftirfarandi upplýsingar birtast fyrir hvern þjónustusamning:

  • Staða samnings (getur verið eftirfarandi)
    • Nýr
    • Í bið
    • Í vinnslu
    • Virkur
    • Óvirkur, búið er að óvirkja samninginn tímabundið
    • Hætt við, samningi er lokið
  • Gildistími samnings
    • Upphaf
    • Endar
  • Yfirfara samning
    • Bæta við
  • Þjónustuþegi, nafn, kennitala og heimilisfang
    • Nánar
    • Viðbótarupplýsingar
    • Tengiliðir
  • Þjónustuáætlanir
    • Stofna þjónustuáætlun
  •  Viðbótarupplýsingar samings
  • Þjónustumat
  • Þjónustuþættir
    • Bæta við þjónustuþætti
    • Breyta þjónustuþætti