/
Inngangur CTS Bus 2

Inngangur CTS Bus 2

BUS kerfi Curron er rafrænt farmiðakerfi sem hefur það megin hlutverk að lesa CTS kort farþega og kanna hvort hann eigi gildan rafrænan miða á kortinu sínu, og ef svo er þá fær hann aðgangsheimild og aðsóknarfærsla er mynduð, annars fær hann höfnun.
Rafrænir aðgangsmiðar kerfisins uppfylla margs konar þarfir og við nýjustu breytingar á kerfinu til að uppfylla þarfir Fjarðabyggðar tengt almenningssamgöngum á austurlandi jókst fjölbreytileikinn enn frekar.
Til að uppfylla ofangreindar þarfir Fjarðabyggðar varð að gera mjög miklar breytingar á kerfinu, en þess var þó gætt að þarfir sem kerfið uppfyllti áður eru áfram uppfylltar þannig að breytingarnar skila eingöngu auknum ávinningi.
Neðangreint eru nokkur dæmi um breytingar sem framkvæmdar hafa verið:

  1. Hægt er að velja áfangastað farþega.
  2. Gjaldtaka tekur mið að því hvar farþegi kemur inn í vagninn og hver áfangastaður hans er, þ.e. gjaldið er breytilegt eftir hvort ferð farþega er innan sama gjaldsvæðis eða milli gjaldsvæða og einnig milli hvaða gjaldsvæða.
  3. Valkvætt er með úthlutun skiptimiða, eftir farmiða sem notaður er og innstig/áfangastað farþega, einnig getur gildistími hans verið breytilegur.
  4. Haldið er nú utan um vanga og tölvur (útstöð) aðgreint, sem getur verið kostur t.d. þegar tölva er fær á milli vagna.
  5. Einfalt er að skoða síðustu notkunarfærslur, kortanúmer, tímasetning og hvaða miði var notaður. Einnig er hægt að bera kort að kortalesara og skoða notkun þess kort, ef t.d. grunur er um að viðkomandi hafi ekki notað kortið sitt eða hugsanlega notað farmiða sem ólöglegur er fyrir hann.
  6. Hægt er að skilgreina hnappa fyrir aðsókn án korta, t.d. fyrir staðgreiðslu, frían aðgang, notkun pappamiða og fleira. Haldið er utan um alla slíka aðsókn.
  7. Ein af stóru breytingunum er að skilgreina gjaldsvæði og gjaldsvæðareglur. Hægt er að stjórna ákveðinni virkni fyrir hvern miða eftir á hvaða leið vagn er þ.e. innan sama gjaldsvæðis eða á milli mismunandi gjaldsvæða.

Og fleira.
BUS kerfið skiptis í þrjá megin hluta, í fyrsta lagi stjórnhluta, í öðru lagi vagnhluta og í þriðja lagi skýrsluhluta. Fyrstu tveir hlutarnir eru client hlutar en skýrsluhlutinn er alfarið vefhluti.
Aðeins vagnhlutanum er lýst í þessu skjali.