Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Unnið er með fjarveru í verkáætlun.

Ef heimaliði er veikur eða fjarverandi einhverra hluta vegna er mikilvægt að skrá hann fjarverandi í CareOn þannig að heimsóknir sem hann á að sinna á fjarverutíma auðkennast í rauðum lit.  Veljið hnappinn Bæta við fjarveru samkvæmt myndinni hér til hliðar, við það birtist myndin hér að neðan.

Image Added

Byrjað er á að velja þann heimaliða sem er fjarverandi úr fellilista og ástæðu fjarveru hans.

Veljið frá og til dags, ath. ekki er hægt að velja dag aftur í tímann. Fjarverutími getur verið einn eða fleiri dagar.

Sjálfvalið er að fjarvera sé fullur dagur þ.e. ekki hluta úr degi.

Þegar búið er að velja ofangreint verður græni hnappurinn Bæta við virkur og hægt er að skrá fjarveruna.

Einnig er hægt að skrá valfrjálsan texta í athugasemdadálkinn neðst.

Image Added

Einnig er hægt að skrá fjarveru sem hluta úr degi.  Sjá dæmi á myndinni hér til hliðar þ.e. heimaliði verður fjarverandi á námskeiði í 3 vikur og mætir því aðeins eftir hádegi á þeim tíma.

Einnig er hægt að skrá fjarveru í t.d. 2 klst. ef heimaliði þarf að skreppa til læknis, þá er dagsetning frá og til sú sama og tíminn t.d. 13:30-15:30.

Image Added