Upphaf
Aðalskjár keyrslumyndar
Takkar
Hætta akstri
Breyta um leið
Núverandi stöð, næsta stöð
Breyta um áfangastað
Skipta um birtustig á skjá
Þegar dimmt er úti getur lýsing frá skjá verið truflandi fyrir bílstjóra vegna mikillar birtu frá skjánum.
Leiðrétta biðstöð
Ljúka ferð
Aðsókn með CTS korti
Aðsókn með CTS korti er mynduð þegar CTS kort með gildum miða er borið upp að kortalesara. Hægt er að skilgreina fyrir ferðir milli gjaldsvæða hvaða miðar gilda, hversu marga miða þarf og hvort rafrænn skiptimiði er myndaður á CTS kort farþega og hve lengi hann á að gilda. Einnig er hægt að skilgreina hvort spurt sé um áfangastað þegar kort með ákveðnum miðum er borið að kortalesara, allt eftir óskum viðskiptavina.
Þegar kort er borið upp að kortalesara geta komið margvísleg skilaboð. Ef skilaboðin eru með grænum bakgrunn þá hefur miðinn verið samþykktur og aðsóknarfærsla verið mynduð, ef þau eru rauð þá hefur kortinu verið hafnað og höfnunarfærsla verið mynduð. Ef miði er skilgreindur svo að spyrja skuli um áfangastað kemur upp valmynd eins og sjá má í kaflanum [Breyta um Áfangastað]. Þá skal velja áfangastað og bera kort aftur upp að lesara.
Eftir að áfangastaður hefur verið valinn mun á miðri Keyrslumynd vera skilaboð til að minna bílstjóra á að biðja farþega um að setja kort aftur á lesara til að taka miða af korti.
Möguleg aðsóknar skilaboð
Möguleg skilaboð eru eftirfarandi:
- {Miði} {Upprunasvæði} – {Áfangasvæði}
- T.d Skiptimiði Egilsstaðir – Reyðarfjörður. Þessi skilaboð koma upp þegar gildur skiptimiði er notaður.
- {Miði} {Upprunasvæði} – {Áfangasvæði}
- Notaði {X} skipti af {Miði}. Inneign nú {Y}
- T.d. Notaði 1 skipti af Skiptamiði. Inneign nú 19. Þessi skilaboð koma þegar gildur skiptamiði er notaður.
- Notaði {X} skipti af {Miði}. Inneign nú {Y}
- {Miði}
- T.d. Alcoa samningsmiði. Kemur þegar gildur svæða eða samningsmiði er notaður.
- {Miði}
Möguleg höfnunar skilaboð
Möguleg höfnunar skilaboð eru eftirfarandi:
- Engir gildir miðar á korti
- Kemur þegar engir gildir miðar finnast á kortinu að völdum áfangastað.
- Óþekktur miði
- Kemur þegar allir miðar á korti eru óþekktir.
- Kortasnið óþekkt
- Getur komið ef kort fer úr sviði áður en lestur þess er lokið eða ef að kortið er ekki CTS kort. Gott er að reyna aftur með því að bera kort að kortalesara ef þessi skilaboð birtast.
- Gildistími ekki hafinn
- Kemur ef gildistími miða á korti er ekki hafinn og enginn annar gildur miði er á kortinu.
- Kortið er útrunnið
- Kemur ef gildistími kortsins sjálfs er útrunnið.
- Kortinu hefur verið lokað
- Kemur ef kortinu hefur verið lokað sem er gert ef Curron berst beiðni um að loka kortinu t.d. ef það hefur týnst.
- Kortið var nýlega notað
- Kemur ef kort hefur nýlega verið notað þ.e. kortið var notað í þessum vagni fyrir innan við 5 mínútum. Ekki er hægt að nota kortið í sama vagni oftar en einu sinni nema minnst 5 mínútur séu frá fyrri notkun. Tilgangur þessa er að koma í veg fyrir mögulega misnotkun.
- Ekki hægt að nota {Miði} hérna. Gildir á {X}
- Kemur þegar reynt er að nota svæðamiða sem gildir ekki frá núverandi biðstöð á valinn áfangastað. Hér er {X} listi af gildum svæðum sem viðkomandi miði gildir á.
- Ekki hægt að nota {Miði} héðan. Gildir á {X}
- Kemur þegar reynt er að nota svæðamiða yfir á svæði sem svæðamiðinn gildir ekki á. Hér er {X} listi af gildum svæðum sem viðkomandi miði gildir á.
- Gat ekki unnið með kort
- Kemur ef ekki tekst að vinna með kort t.a.m. lækka inneign við notkun skiptamiða. Hugsanlega hefur kortið verið haldið of stuttan tíma að kortalesaranum, gott að reyna aftur.
- Óþekktur samningur {númer samnings}
- Kemur ef kort inniheldur samningsmiða með óþekktum samningi og enga aðra gilda miða.
- Ónóg inneign á {Miði}
- Kemur ef kort inniheldur skiptamiða með ónógri inneign og enga aðra gilda miða.
- {Miði} rann út {Dagsetning}
- Kemur ef kort inniheldur útrunninn miða og enga aðra gilda miða, þ.e. gildistími miðans er útrunninn. Ath. allir rafrænir miðar hafa gildistíma, einnig skiptamiðar.