Þegar skoða á þjónustusamninga er þessi aðgerð valin, við það birtist listi yfir alla þjónustusamninga fyrir valda þjónustumiðstöð. Ef notandi hefur aðgangsheimild getur hann valið aðra þjónustumiðstöð (við hliðina á nafninu þínu í rauðu línunni) og birt þjónustusamninga hennar. Eftirfarandi upplýsingar birtast fyrir hvern þjónustusamning:
| |
Staða samnings getur verið:
Hægt er að birta alla þjónustusamninga fyrir ákveðinn þjónustuþega með því að skrá nafn hans í reitinn „Þjónustuþegi“ eða kennitölu hans í kennitölureitinn. Hægt að birta aðeins þjónustusamninga með ákveðna stöðu með því að velja viðkomandi stöðu. Hægt er að raða samningum eftir stöðu þeirra, hvenær samningur var stofnaður, upphafsdegi samnings og lokadegi samnings með því að smella með músinni á fyrirsögn viðeigandi dálks. Til að skoða eða vinna frekar með valinn þjónustusamning er hnappurinn „Nánar“ valinn. |
General
Content
Integrations
Add Comment