Leit - korthafar og kort

Hér getur notandi skráð númer CTS korts sem á að skoða og velja hnappinn Leita með músinni til að finna kortið.

Einnig er hægt að velja flippann einstaklingum til að leita að korthafa með því að skrá hluta úr nafni hans eða kennitölu og velja hnappinn Leita með músinni til að hefja leit.

 

Ef ekkert stemmir við val notanda þá birtist textinn: Engin kort fundust.

 

Niðurstöður kortaleitar

Ef kort finnast sem stemmir við val notanda birtist listi yfir korthafa og kort þeirra - skjá skjámyndina hér til hliðar.

Fyrir hvert kort birtist nafn korthafa, kennitala, kortanúmer og staða korts þ.e. hvort það er virktlokað eða enduropnað. Ef um handhafakort er að ræða birtist "Handahafakort" í stað nafn korthafa og engin kennitala er birt.

Nú getur notandi valið þá línu (kort) sem hann vill skoða.

Skoða tiltekið kort  / korthafa

Eftir að notandi hefur valið tiltekið kort birtist skjámyndin hér til hliðar með upplýsingum um númer korts, stöðu korts og dagsetning hvenær kortið sjálft rennur úr gildi. Ef kortið er persónugert birtast einnig nafn og kennitala korthafa.

Þær aðgerðir sem hægt er að framkvæma í skjámyndinni eru aðgangsstýrðar og því mismunandi hvaða heimildir hver notandi hefur. 

Einnig er aðgangsstýrt hvaða miða notendur geta séð og því ekki víst að allir miðar sem viðkomandi kort inniheldur birtist þegar það er skoðað.



Yfirlit yfir lokun og enduropnun korta

Allar lokanir og enduropnanir korta eru þekktar í kerfinu, einnig hver framkvæmdi og hvenær. Því er hægt að skoða allar lokanir og enduropnanir með því að velja ljósbláa hnappinn við hliðina á hnappinum Loka korti og Enduropna kort, við það birist skjámyndin hér til hliðar.

Loka korti

Með því að velja hnappinn Loka korti er hægt að loka kortinu, þá birtist skjámyndin hér til hliðar.

Notandi þarf að velja ástæða fyrir lokuninni og einnig getur hann skráð frekari skýringu. Að því loknu er græni hnappurinn Loka korti valinn.

Enduropna kort

Ef kortið er lokað birtist hnappurinn Enduropna kort og er hægt að velja hann til að enduropna kortið.  Við að enduropna kort er valin ástæða fyrir opnuninni og einnig hægt að skrá frekari skýring ef þörf.

Yfirlit yfir lokun og enduropnun korta:

 

Vörur á korti  (miðar)

Eftir að notandi hefur valið tiltekið kort þá birtist myndin hér til hliðar; nafn og kennitala korthafa, númer korts, staða korts og dagsetning hvenær kortið sjálft rennur úr gildi.

Einnig birtist listi yfir alla virka miða á kortinu og fyrir hvern miða birtist:

  1. Útgefandi:  Hver er útgefandi (eigandi) miðans.
  2. Nafn:  Heiti miðans.
  3. Gildi:  Miðar geta innihaldið mismunandi gildi, eftir eðli miðans. T.d. fyrir skiptamiða birtist hér fjöldi skipta sem eru ónotuð.
  4. Gildistími:  Hér birtist gildistími miðans. Sumir miðar hafa aðeins loka gildisdag þ.e. gildistími þeirra hefst um leið og þeir eru vistaðir á kort – því birist í sumum tilvikum aðeins ein dagsetning hér þ.e. lokadagur.

Með því að setja hak í reitinn  Sýna útrunna miða  þá birist allir miðar sem settir hafa verið á kortið en eru útrunnir.

Fjarlægja miða af korti

Ef lína er með rauðum hnapp með hvítu X-i í enda línunnar (sjá í skjámyndinni hér að ofan) er hægt að velja hnappinn til að fjarlægja viðkomandi miða af kortinu. Við það birtist skjámyndin hér til hliðar.  Þar sem miðinn sem fjarlægja á er á kortinu sjálfu og notandi er ekki með kortið er útbúin skipun í kerfinu sem kölluð er afhleðslupakki sem virkar þannig að þegar korthafi notar kortið sitt næst í kerfinu er viðkomandi miði fjarlægður af kortinu.

Neðangreindar upplýsingar eru skráðar fyrir afhleðslupakka, ath. hægt er að fá skýringar með því að bera músina að i-hnappinum við hvern reit.

  1. Sendandi: Upplýsingar til korthafa um hver bjó til pakkann.
  2. Nafn: Pakkinn fær þetta nafn sem birtist korthafa þegar pakkinn er afgreiddur.
  3. Lýsing:  Frekari skýringar til korthafa.
  4. Gildistími pakka:  Gildíminn verður sjálfkrafa sami gildistími og miðinn hefur sem verið er að fjarlægja. Eftir að gildistíminn er útrunninn óvirkjast pakkinn og er ekki afgreiddur, enda óþarfi því miðinn er þá einnig útrunninn. 
  5. Eigandi: Notandi tilheyrir ákveðnu sviði eða deild sem er sjálfkrafa valin, en hægt er að breyta ef notandi tilheyrir mörgum sviðum/deildum.
  6. Ástæða pakka: Verður sjálfkrafa Leiðrétting.
  7. Athugasemd: Valfrjálstexti sem birtist ekki korthafa.

 

Notkunarsaga

Hægt er að skoða alla notkun hvers miða með því að smella á bláa plús hnappinn fremst í línu þess miða sem skoða á. Við það birtist listi yfir alla notkun miðans. LOKAÐ ER FYRIR ÞESSA AÐGERÐ VEGNA PERSÓNUVERNDAR.

Upplýsinar sem birtast: 

  1. Tími:  Sem notkunin átti sér stað.
  2. Lýsing:  Frekari skýring.
  3. Færsla: Eðli færslu, t.d. Áfylling ef miði var settur á kort, Fjarlæging ef miði var fjarlægður af kortinu, eða ef inneign hans var lækkuð t.d. um 1 skipti.  Þegar tímabilsmiði er notaður minnkar ekki inneign hans þar sem notkun er ótakmörkuð á gildistíma tímabilsmiða, þær notkunarfærslur fá hér textann Merki.
  4. Staður:  Hér birtist heiti þess þjónustustaðar sem miðinn var notaður hjá eða áfylltur á kortið.
  5. Útstöð:  Hér birtist heiti útstöðvar sem miðinn var notaður í eða áfylltur á kortið.  Með útstöð er átt við t.d. aðgangshlið, afgeiðslukassi, búnaður í farþegavagni, bensíndæla o.þ.h.

 

Pakkar

Skipta má rafrænum CTS miðum í tvo hópa eftir hvar inneign kortsins er geymd þ.e. þeir skiptast annars vegar í kortamiða og hins vegar í reikningsmiða. Kortamiðar eru geymdir á kortinu sjálfu þ.e. í örgjava þess, en reikningsmiðar eru geymdir miðlægt á kortareikningi kortsins. Sjá frekari upplýsingar varðandi inneignir korta hér.

Hvað er pakki?  Mikið af þeim miðum sem notaðir eru í CTS kerfinu eru kortamiðar, t.d. sundmiðar og strætómiðar. Notandi í CTS kerfinu t.d. stjórnandi hjá sveitarfélagi þarf að geta sett sundmiða á tiltekið CTS kort eða fjarlægt sundmiða af tilteknu CTS korti án þess að hann sé með kortið.  Svokallaðir pakkar gera þetta mögulegt, þ.e. þeir innihalda skipanir fyrir CTS kerfið um að setja miða á kort og að fjarlægja miða af CTS korti.

 

Pakkar korts   (hleðsla/afhleðsla)

Þegar þessi flippi er valinn birtist skjámyndin hér til hliðar með upplýsingum um alla óafgreidda pakka fyrir valið kort.  Fyrir hvern pakka birtist eftirfarandi:

  1. Blár takki með plús: Hægt er að smella á takka til að skoða innihald pakkans.
  2. Stofnaður: Hér birtist dagur og tími þegar pakkinn var búinn til.
  3. Nafn: Hér birtist nafn pakkans sem stofnandi gefur honum, almennt aðeins til skýringa.
  4. Sendandi:  Hér birtast upplýsingar um sendanda eða þann sem óskaði eftir pakkanum, skráð af stofnanda.
  5. Gildistími pakka: Allir pakkar hafa gildistíma, ekki er hægt að afgreiða pakkann nema á gildistíma hans. Ef gildistíminn rennur út áður en pakkinn er afgreiddur er ekki hægt að afgreiða hann, þ.e. skipun sem pakkinn inniheldur verður ekki framkvæmd.  Almennt er gildistími pakka sá sami og gildistími miða sem pakkinn er að vinna með.
  6. Staða: Hér birtist staða pakkans, þ.e. hvort búið sé að framkvæma pakkann eða ekki.
  7. Rauðu takki með X-i: Hægt er að hætta við pakkann með því að velja þennan hnapp, þá fær viðkomandi pakki stöðuna "Hætt við" og verður ekki afgreiddur.
  8. Blár takki með kassa: Með því að velja þennan hnapp er hægt að skoða sögu pakkans.

Innihald pakka

Þegar innihald pakka er skoðað birtist skjámyndin hér til hliðar, þar koma eftirfarandi upplýsingar fram:

  1. Skýring: Notandi getur skráð frekari skýringu við stofnun pakkans.
  2. Val: Notandi getur ákveðið hvort korthafi verði að afgreiða pakkann eða hvort það er valkvætt fyrir hann.
  3. Ástæða:  Hægt er að velja ýmsar ástæður fyrir pakkanun, m.a. sala ef korthafi hefur keypt miðann, úthlutun ef korthafa er úthlutað miðanun, á t.d. við um velferðarmða, vinningurgjöfleiðrétting ef verið er að leiðrétta inneign kortsins og að síðustu notkun ef verið er að leiðrétta notkun.
  4. Útgefandi:  Sá aðili sem er útgefandi miðans, t.d. er Reykjavík útgefandi sinna sundmiða og Garðabær útgefandi sinna sundmiða í CTS kerfinu.
  5. Nafn: Nafn miða sem pakkinn er að vinna með.
  6. Færsla:  Segir til um hvað pakkinn á að gera við miðann þ.e. annað hvort Áfylling ef setja á miðann á kortið, eða Fjarlæging þ.e. fjarlægja á miðann af kortinu.
  7. Gildi:  Miðinn getur innihaldið mismunandi gildi eftir eðli miðans, t.d. getur starfsmannamiði innihaldið númer starfstaðar, samningsmiði númer samnigns oþh.
  8. Gildistími miða: Allir miðar hafa gildistíma, hér birtist gildistími miðans sem pakkinn inniheldur. Sumir miðar hafa ekki upphafsdag þ.e. þeir gilda frá þeim degi sem þeir eru settir á kort, í þeim tilvikum birist aðeins lokadagurinn hér.
  9. Ómissandi: Þetta gildi er almennt Já, þ.e. ef mistekst að afgreiða þennan miða þá er pakkinn ekki afgreiddur. Ef pakki innihaldur fleiri en einn miða og annar miðinn hefur Nei hér er pakkinn afgreiddur þó svo ekki takist að afgreiða þennan miða.

Afgreiddir pakkar

Hægt er að birta pakka sem annað hvort eru afgreiddir, hætt er við eða runnu úr gildi. Það er gert með því að fjarlægja hakið við línuna "Sýna aðeins óafgeidda pakka".  Upplýsingar þeirra eru þær sömu og fyrir óafgreidda pakka, nema staða þeirra er önnur.

 

Nýr pakki   (áfylling á kort)

Þessi aðgerð er valin ef búa á til skipun um áfyllingu miða á kort sem ekki er í höndum notanda þ.e. útbúinn er til hleðslu-pakki. Þegar þessi aðgerð er valin birtist skjámyndin hér til hliðar, þar er valið hvaða miða á að setja á kortið. Skipta má skjámyndinni í tvo hluta, annars vegar val á miða og hins vegar annað val fyrir pakkann.

Val á miða

Allir miðar sem notandi hefur aðgang að birtast í þessum glugga, fyrir hvern miða birtast eftirfarandi upplýsingar:

  1. Útgefandi: Sá aðili sem er útgefandi miðans, t.d. er Reykjavík útgefandi sinna sundmiða og Garðabær útgefandi sinna sundmiða í CTS kerfinu.
  2. Tegund:  Hér birist tegund miðans, en þær geta verið margar, m.a. tímabilsmiði og skiptamiði.
  3. Miði: Hér birtist heiti miðans.

Ef mjög margir miðar birtast er hægt að auðvelda leitina að réttum miða með því að skrá gildi í reitina fyrir ofan hvern dálk.  Ef leita á að velferðarmiða þá er t.d. hægt að skrá "vel" í reitinn fyrir ofan heiti miða og birtast þá aðeins miðar með þessum texta í nafninu.

Hægt er að velja fjölda miða sem birtast á hverri síðu, 10, 25, 50 og 100.  Ef miðarnir eru fleirir er hægt að kalla á ákveðan síðu með því að velja númer hennar eða velja næstu/fyrri síðu með því að velja viðkomandi hnapp.

Þegar miðinn sem setja á á kortið er fundinn er valinn græni hnappurinn með plúsinum á aftast í línunni, við það birtist nýr gluggi þar sem notandi getur valið hvaða gildistíma miðinn á að hafa og ef um skiptamiða er að ræða þá birtist einnig fjöldinn, t.d. 10 ef um 10 skiptamiða er að ræða og notandi getur fækkað skiptunum (sjá myndin hér til hægri). Að því loknu velur notandi að bæta miðanum við pakkann.  Sami pakkinn getur innihaldið marga miða, en mælt er með því að hver pakki innihaldi aðeins einn miða.

Aðrar upplýsingar pakka

Í hinum hlutanum þarf notandi að skrá/velja eftirfarandi upplýsingar fyrir pakkann:

  1. Sendandi: Hér getur notandi skráð upplýsingar um sendanda eða þann sem óskaði eftir pakkanum, þessar upplýsingar birtast við afgreiðslu pakkans.
  2. Nafn:  Hér getur notandi gefið pakkanum lýsandi heiti, þessar upplýsingar birtast alltaf tengt pakkanun m.a. við afgreiðslu hans.
  3. Lýsing: Valfrjálstexti sem birtist m.a. við afgreiðslu pakkans.
  4. Gildistími pakka: Allir pakkar hafa gildistíma og ekki er hægt að afgreiða pakka nema á gildistíma hans. Ef gildistíminn rennur út áður en pakkinn er afgreiddur er ekki hægt að afgreiða hann.  Pakkinn fær sjálfkrafa sama gildistíma og miðinn hefur sem hann inniheldur.
  5. Eigandi: Almennt þarf notandi ekki að breyta þessu gildi og getur það ekki í flestum tilvikum.
  6. Ástæða pakka: Hér er ástæða pakkans valin, en hún tetur verið:
    • Sala, þ.e. korthafi hefur greitt fyrir miðann.
    • Úthutun, korthafa er úthlutað miðanun, á t.d. við um velferðarmða.
    • Vinngur, korthafinn hefur hlotið miðann sem vinning.
    • Gjöf, korthafinn hefur hlotið miðann sem gjöf.
    • Leiðrétting, ef verið er að leiðrétta inneign kortsins.
    • Notkun, ef verið er að leiðrétta notkun kortsins.
  7. Athugasemd: Hér getur notandi skráð valfrjálsantexta fyrir pakkan, má sleppa skráningu.

Að síðustu er græni hnappurinn "Senda" valinn, við það er bakkinn búinn til.

Loggar

Í hvert skipti sem skipun er framkvæmd fyrir tiltekið kort er mynduð færsla tengt skipuninni til að mynda rekjanleika sem skapar Curron m.a. möguleika á að bregðast við og greina mögulegar ástæður ef kvartanir berast um óðlilega virkni.  

Rekjanleiki er m.a. fyrir allar neðangreindar skipanir: 

  • Kort persónugert
  • Áfylling miða á kort
  • Notkun miða á korti
  • Fjarlægja miða af korti
  • Höfnun á notkun korts + ástæða höfnunar
  • Upplýsingar um pakka fyrir kort, m.a. afgreiðsla
  • Lokun korts
  • Enduropnun korts

Sjá einnig skjáskot hér til hliðar.

Korthafi

Með því að smella á nafn korthafa með músinni, sjá örina á myndinni hér til hliðar, þá birtist ný mynd, sjá þar fyrir neðan.  Þar má sjá neðangeinda þrjá flibba:

  • Kort
  • Umsóknir
  • Hópar

Kort

Þegar þessi flibbi er valinn birtist listi yfir öll útgefin kort á viðkomandi einstakling. Fyrir hvert kort birtist staða korts, hvenær kortið var gefið út og hvenær það rennur úr gildi þ.e. lokadag þess.  Hægt er að velja eitt af kortunum með því að smella á viðkomandi línu með músinni, við það birtist ný mynd, sjá aðgerðina "Skoða tiltekið kort" hér að ofan í leiðbeiningum þessum.

Umsóknir

Ef þessi flibbi er valinn birtist myndin hér til hliðar, þar má sjá allar kortaumsóknir fyrir viðkomandi korthafa.  Fyrir hverja umsókn birtast eftirfarandi upplýsingar:

  • Staða: Hér birtist staða umsóknar, hún getur verið eftirfarandi:
    • Skráð
    • Hætt við umsókn / afgreitt
    • Í útgáfu
    • Kort útgefið
    • Kort móttekið á áfangastað
    • Kort afhent umsækjanda / afgreitt
    • Ósóttu korti eytt / afgreitt
  • Kortasería: Hver útgefandi CTS korts hefur sitt kortseríunúmer, t.d. hefur ÍTR 151, Mosfellsbær 160, Garðabær 164 o.sv.frv.  Þ.e. kort viðkomandi aðila byrja á þessu númeri.
  • Kortanúmer:  Ef búið er að gefa kortið út birtist kortanúmerið hér.
  • Dags. ums.:  Dagsetning þegar umsóknin var stofnuð.
  • Dags. útg.:  Dagsetning þegar kortið var gefíð út.
  • Dags. mót.:  Dagsetning þegar kortið var móttekið á afhendingarstað.
  • Dags. sótt:  Dagsetning þegar korthafi sótti kortið á afhendingarstað.
  • Afhendingarstaður:  Heiti afhendingarstaðar.

 

Skoða umsókn

Með því að smella með músinni á bláa hnappinn fremst í línunni er hægt að skoða frekari upplýsingar um viðkomandi kortaumsókn, sjá myndina hér til hliðar.  Þá birtast eftirfarandi upplýsingar til viðbótar:

  • Umsóknar númer
  • Miði: Heiti miða sem vista á á kortið um leið og það er gefið út.
  • Miði gildir frá: Dagur þegar gildistími miða hefst.
  • Miði gildir til: Lokadagur gildstíma miða.
  • Umsókn skráð af: Nafn starfsmanns sem skráði umsóknina.
  • Móttekið af: Nafn starfsmanns sem móttók kortið á afhendingarstað. 
  • Afhent af: Nafn starfsmanns á afhendingarstað sem afhenti korthafa kortið.

 

Breyta stöðu umsóknar

Ef einstaklingur hefur óafgreidda kortaumsókn í CTS kerfinu er ekki hægt að stofna nýja kortaumsókn fyrr en búið er að afgreiða fyrri umsókn.  Allt umsóknar- og afhendingarferli CTS korta er rafrænt, m.a. framkvæma starfsmenn á afhendingarstöðum korta rafræna móttöku korta frá Curron og rafræna afhending þegar þeir afhenda umsækjanda kortið sitt. Því er staða umsóknar/korts ávalt þekkt í CTS kerfinu.

Ef starfsmaður gleymir að framkvæma rafræna afhendingu þegar hann afhendir umsækjanda kortið sitt þá er staða viðkomandi umsóknar röng í kerfinu þ.e. kerfið veit ekki að búið er að afhenda kortið og umsóknin því afgreidd, heldur hefur umsóknin stöðuna "Kort móttekið á afhendingarstað" og þar með ekki hægt að skrá nýja umsókna á einstaklinginn. 

Þegar þetta gerist er hægt velja hnappinn "Breyta stöðu umsóknar", sjá myndina við fyrri lið.  Við það birtist myndin hér til hliðar. Ef kortið hefur verið notað þá veit kerfið að búið er að afhenda kortið og bíður notanda upp á að breyta stöðu umsóknar í "Kort afhent umsækjanda" með því að velja bláa hnappinn "Skrá korta afhent umsækjanda".

Ef búið er að afhenda kort á afhendingarstað en staða umsóknar er "Kort útgefið" þ.e. gleymst hefur að framkvæma rafræna móttöku og kortið hefur ekki verið notað þá birtast tveir valmöguleikar sem notandi getur valið á milli um að breyta stöðu umsóknar þ.e. annars vegar í "Kort móttekið á afhendingarstað" og hins vegar "Skráð kort afhent umsækjanda".

 

Breytingarsaga umsókna

Hægt er að skoða breytingarsögu umsókna með því að velja bláa hnappinn aftast í línu viðkomandi umsóknar, þá birtist myndin hér til hliðar.  Þar má sjá lista yfir allar breytingar, tíma hvenær breyting var framkvæmd og af hverjum.

Síðan er hægt að smella á plúshnappinn fremst í breytingarlínu til að skoða hvaða breyting var framkvæmd, þá birtist næsta mynd.

 

Stofna nýja umsókn

Þegar þessi aðgerð er valin birtist myndin hér til hliðar.  Notandi sem skráir kortaumsóknina skráir eftirfarandi upplýsingar:

  • Afhendingarstaður:  Hér er valinn afhendingarstaður kortsins úr lista yfir mögulega afhendingarstaði.
  • Miði: Ef setja á miða á kortið um leið og það er gefið út er miðinn valinn hér.
  • Gildistími miða: Miðar geta verið með mismunandi gildistímareglu, en hér er valinn gildistími sem miðinn á að fá, samkvæmt reglu fyrir valinn miða.
  • Ástæða: Hér er valin ein af neðangreindum ástæðum.
    • Sala, þ.e. korthafi hefur greitt fyrir miðann.
    • Notkun, ef verið er að leiðrétta notkun kortsins.
    • Úthutun, korthafa er úthlutað miðanun, á t.d. við um velferðarmða.
    • Vinngur, korthafinn hefur hlotið miðann sem vinning.
    • Gjöf, korthafinn hefur hlotið miðann sem gjöf.
    • Leiðrétting, ef verið er að leiðrétta inneign kortsins.
  • Athugasemd: Hér er hægt að skrá valfrjálsan texta ef þörf er á.

Að lokun er hnappurinn stofna umsókn valinn og birtist þá staðfestingarglugginn hér til hliðar og þarf notandinn að velja "Senda umsókn" til að stofna hana.

Hætta við umsókn

Hægt er að hætta við skráð umsókn ef ekki er búið að gefa kortið út, þá birtist rauður hnappur "Hætta við umsókn".  Hann er valinn til að hætta við umsóknina, þá birtist staðfestingargluggi þar sem notandi getur skráð valfrjálsan skýringartexta.

Eftir að hætt hefur verið við umsókn fær hún stöðuna "Hætt við umsókn / afgreitt".