Hér eru stuttar leiðbeiningar um það hvernig á að breyta og viðhalda kerfis réttindum notenda þ.e. hvað notandi getur framkvæmt.
Almennt
Aðgangsstýring fyrir notendur er skipt upp í þrjú meginsvæði
Réttindi
Réttindi | Lýsing |
---|---|
Skoða | Gefur réttindi til að skoða innan kerfis á deild |
Breyta | Gefur réttindi að breyta innan kerfis á deild |
Skapa | Gefur réttindi til skapa og stofna innan kerfis á deild |
Eyða | Gefur réttindi til að eyða innan kerfis á deild |
Endurkvæmt | Gefur endurkvæm réttindi á kerfi |
Úthluta Skoða | Gefur réttindi til að úthluta stofna réttindum á aðra notendur |
Úthluta Breyta | Gefur réttindi til að úthluta breyta réttindum á aðra notendur |
Úthluta Skapa | Gefur réttindi til að úthluta skapa réttindi á aðra notendur |
Úthluta Endurkvæmt | Gefur réttindi til að endurkvæm réttindi á aðra notendur |
Þegar rétttindum er breytt eru þau sjálfkrafa vistuð.
Deildir
Hér er skal velja þá deild undir fyrirtæki sem að notandi á að fá réttindi á.
Endurkvæmni Réttinda
Réttindi á undir deildir eru sjálfvirkar.
Þannig að deildar réttindi gefa aðgang að undir deildum.
Kerfi
Endurkvæmni Réttinda
Réttindi á undir kerfi eru ekki sjálfvirk.
Til að gefa réttindi á undir kerfi þá þarf að velja réttindin 'Endurkvæmt'
Sýnidæmi
Hér er eitt stutt sýndardæmi um hvernig réttindi eru gefinn:
Við erum með notendan 'Lisa' sem að á að fá réttindi til að geta skoðað uppgjör fyrir deildir innan fyrirtækis. Hún á einnig að geta gefið öðrum réttindi á deildina til að geta skoðað uppgjör.
- Valið er deildin sem að Lísa á að fá réttindi að.
- Valin er 'Deild 1' í dæminu, sem að gefur Lísu einnig aðgang að undir deildum.
- Valið er kerfið sem að Lísa á að fá aðgang að.
- Valið er kerfi í dæminu er 'Uppgjörs Tímabil'
- Valin eru 'Skoða' og 'Endurkvæmt' réttindi.
- Skoða gefur Lísu réttindi til að skoða Uppgjörs tímabil.
- Val á 'Endurkvæmt' gefur Lísu einnig réttindi á undir kerfi 'Uppgjörs Tímabils'
- Valin eru réttindin 'Úthluta Skoða' og 'Úthluta Endurkvæmt'.
- Úthlutunar réttindin gefa Lísu réttindi til að veita öðrum notendum aðgang að 'Uppgjör Tímablis'
- Lísa er nú komin með réttindi til að skoða og úthluta réttindum á 'Uppgjörs Tímabil'.
Tengdar greinar