Yfirlit
Hér er stutt yfirlit yfir hluta sem skipta má CareOn kerfinu niður í:
Nr. | Hluti | Skýring |
---|---|---|
1 | Uppgjör Heimaþjónustukerfis | |
2 | Greiningatæki heimaþjónustukerfis | Í þessum hluta er unnið með upplýsingar CareOn, bæði með OLAP greiningartækninni og einnig hefðbundinni skýrslugerð. CareOn mun halda utan um mikið magn að gögnum sem eru mjög verðmætar upplýsingar fyrir sveitarfélög og stofnanir. Þær munu m.a. skapa þeim mikið tækifæri til að bæta þjónustuna og auka hagkvæmni við framkvæmd þjónustunnar. |
3 | Verkáætlanir heimaþjónustukerfis | Í þessum hluta fæst góð yfirsýn yfir skipulagða heimaþjónustu á sjónrænan hátt og því m.a. fljótlegt að sjá hvort heimaliði hefur lausan tíma eða er of hlaðinn verkefnum. Hægt er að skoða heilan mánuð, viku eða ákveðinn dag. Litir eru mikið notaðir til að auðvelda sjónræna skoðun, m.a. til að upplýsa hvort heimsókn sé lokið, hætt hafi verið við heimsókn, hvort heimsóknir lenda í árekstri, hvort heimsókn sé skráð á heimaliða sem er fjarverandi, hvort heimsókn sé ekki skráð á heimaliða, þjónustuþörf þjónustuþega og fleira. Hægt er að velja að birta aðeins: Heimsóknir sem til heyra ákveðinni vakt, heimsóknir sem ákveðinn heimaliði á að sinna, heimsóknir til ákveðins þjónustuþega, heimsóknir til þjónustuþega með t.d. mjög mikla þörf. Og einnig sambland af þessum valmöguleikum. Einfalt er að framkvæma breytingar á heimsókn, m.a. skipta um heimaliða, breyta framkvæmdardegi/tíma, hætta við heimsókn, breyta umfangi þjónustuþáttar í heimsókninni og bæta við þjónustuþætti í heimsóknina. Einnig er hægt að láta breytingar ná til allra endurtekninga heimsóknarinnar fram í tímann, nema þegar þjónustuþætti er bætt við þá á sú breyting aðeins við valda heimsókn. |
4 | Þjónustusamningar heimaþjónustukerfis | Þegar umsókn er samþykkt stofnast sjálfkrafa til þjónustusamningur fyrir umsóknina. Í þessum hluta er útbúin ein eða fleiri þjónustuáætlun fyrir hvern þjónustusamning eftir hvort margar vaktir þarf til að sinna viðkomandi þjónustuþega. Hver þjónustuáætlun inniheldur allar heimsóknir til viðkomandi þjónustuþega, framkvæmdardagur og framkvæmdartími er þekktur fyrir hverja heimsókn, hvaða heimaliði á að sinna henni og hvað framkvæma á í viðkomandi heimsókn. Mögulega er ekki hægt að uppfylla alla samþykkta þörf og í þeim tilvikum inniheldur þjónustuáætlunin ekki alla þjónustuþætti eða minna umfang en samþykkt var fyrir viðkomandi þjónustuþega. Ef breyta þarf mikið þjónustuáætlun er einfalt að útbúa nýja áætlun og óvirkja eldri áætlun. |
5 | Umsóknir heimaþjónustukerfis | Hér eru umsóknir stofnaðar og skráðar upplýsingar þeim tengdum, metin er þjónustuþörf hvers umsækjanda og ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði um þjónustu er umsókninni hafnað með viðeigandi ástæðum. Ef umsækjandi uppfyllir skilyrði um heimaþjónustu er skráð samþykkt þjónustuþörf hans og umsóknin síðan samþykkt. |
6 | Stillingar heimaþjónustukerfis | Í þessum hluta getur hvert sveitarfélag/stofnun skráð sínar eigin stillingar sem hefur áhrifá ákveðna virkni í kerfinu. Dæmi um stillingar eru: Þjónustuflokkar, þjónustuþættir, þjónustuþörf, ástæður og fleira. |
7 | Skilaboð | |
8 | Notendur |