Hér til hliðar er valmynd heimaþjónustukerfisins CareOn. Rauða línan efst birtist í öllum skjámyndum kerfisins og er alltaf hægt að velja Heim vinstra megin til að kalla fram valmyndina.
Hægra megin í línunni birtst nafn þitt og með því að velja það birtist fellilist með tveimur valmöguleikum:
- Uppfæra prófil - þetta velur þú til að geta breytt þínum upplýsingum, m.a. lykilorði.
- Útskrá - þetta velur þú ef þú vilt útskrá þig úr kerfinu.
Í valmyndinni birtast kassar og undir hverjum kassa er tiltekin kerfishluti af CareOn sem innihalda mismunandi aðgerðir. Hægt er að velja kerfishluta hér að neðan og kalla fram upplýsingar um hann og aðgerðir hans.
Umsóknir heimaþjónustukerfis
Þjónustusamningar heimaþjónustukerfis
Verkáætlanir heimaþjónustukerfis
Skilaboð
Greiningartæki heimaþjónustukerfis
Uppgjör heimaþjónustukerfis
Þjónustusamnigar
Í þessum kerfishluta er unnið með þjónustusamninga og þjónustuáætlanir. Þegar umsókn er samþykkt stofnast sjálfkrafa þjónustusamningur fyrir umsóknina. Búin er til ein eða fleiri þjónustuáætlun fyrir hvern þjónustusamning eftir hvort margar vaktir þarf til að sinna viðkomandi þjónustuþega.
Hver þjónustuáætlun inniheldur heimsóknir til viðkomandi þjónustuþega, framkvæmdardagur og framkvæmdartími er þekktur fyrir hverja heimsókn, hvaða heimaliði á að sinna henni og hvaða framkvæma á í viðkomandi heimsókn.
Mögulega er ekki hægt að uppfylla alla samþykkta þörf og í þeim tilvikum inniheldur þjónustuáætlunin ekki alla þjónustuþætti eða minna umfang en samþykkt var fyrir viðkomandi þjónustuþega.
Ef breyta þarf mikið þjónustuáætlun er einfalt að útbúa nýja áætlun og óvirkja eldri áætlun.
Verkáætlanir
Í þessum kerfishluta er unnið með verkáætlanir, brugðist við öllum nauðsynlegum breytingum á áætlunum s.s. fella niður heimsókn, breyta framkvæmdartíma heimsóknar, setja annan heimaliða á heimsókn, bregðast við fjarveru heimaliða þ.e. færa heimsóknir yfir á aðra heimaliða eða fella niður.
Endurmat
Í þessum kerfishluta er þjónustuþörf þjónustuþega endurmetin. Reglulega þarf að framkvæma endurmat fyrir þá sem fá heimaþjónustu. Þessi kerfishluti er ekki tilbúin.
Þegar valið er að framkvæma endurmat fyrir þjónustuþega þá verur til endurmat fyrir hann. Þegar niðurstaða endurmats liggur fyrir er hún skráð í endurmatið og það annað hvort hafnað eða samþykkt. Ef niðurstaðan er að þjónustuþeginn uppfyllir ekki lengur skilyrði um heimaþjónustu þá er niðurstaða endurmatsins HÖFNUN, ef aftur á móti hann uppfyllir skilyrði þá er samþykkt þörf hans skráð og endurmatið fær stöðuna SAMÞYKKT.
Þegar endurmat er samþykkt verður til nýr þjónustusamningur. Ef þjónustuþörfin breytist ekkert þá þarf notandi ekki að framkvæma nýja þjónustuáætlun. Ef þjónustuþörfin breytist lítið þá þarf notandi ekki að útbúa nýja þjónustuáætlun fyrir alla þjónustuna, heldur getur hann afritað núverandi þjónustuáætlun yfir í nýja og þarf aðeins að bæta við nýrri þjónustu eða fella niður ef hætta á einhverri þjónustu.
Greiningartæki
Í þessum kerfishluta er unnið með upplýsingar CareOn, bæði með OLAP greiningartækninni og einnig hefðbundinni skýrslugerð.
CareOn mun halda utan um mikið magn að gögnum sem eru mjög verðmætar upplýsingum fyrir sveitarfélög og stofnanir. Þær munu m.a. skapa þeim mikið tækifæri til að bæta þjónustuna og auka hagkvæmni við framkvæmd þjónustunnar.
Stillingar
Í þessum kerfishluta getur notandi skráð og breytt ýmsum grunnstillingum kerfisins, s.s. heimaliðum, þjónustuþáttum, þjónustuflokkum, þjónustuþörf, vöktum, ýmsum ástæðum, viðbótarupplýsingum o.fl.
Öryggisstillingar
Í þessum hluta eru aðgerðir fyrir öryggisstillingar kerfisins.
Add Comment