Tengiliðir

Hér er hægt að skoða og ný skrá tengiliði fyrir valinn þjónustuþega. Ef enginn tengiliður hefur verið skráður birtist myndin hér til hliðar og hægt er að velja hnappinn Bæta við tengilið til að nýskrá tengilið.


Yfirlit:


Yfirlit yfir skráða tengiliði

Ef skráðir hafa verið tengiliðir fyrir valinn þjónustuþega birtist listi yfir þá, nafn, sími og netfang. Sjá myndina hér til hægri.

Hægt er að skoða nánar tengilið með því að velja hnappinn Nánar í viðkomandi línu. Sjá næsta lið hér að neðan.


Breyta upplýsingum tengiliðar eða eyða

Þegar búið er að velja tengilið birtist myndin hér til hliðar með upplýsingum tengiliðar. Hægt er að breyta upplýsingum hans, til að breytingar taki gildi verður og að velja græna hnappinn Uppfæra.

Einnig er hægt að eyða tengilið með því að velja rauða hnappinn Eyða.


Nýskrá tengilið

Hér er nýr tengiliður stofnaður, eftirfarandi upplýsinar er hægt að skrá fyrir hvern tengiliði:

  • Nafn tengiliðar.
  • Tengsl; hér eru viðeigandi tengsl tengiliðar við þjónustuþega valinu úr fellilista.
  • Sími; hér er hægt að skrá heimasíma eða farsíma tengiliðar. 
  • Email; hér er hægt að skrá netfang tengiliar.
  • Glósur; hér er hægt að skrá valfrjálsan texta tengt tengiliiðnum sem gott er að vita um hann. Hægt að breyta að vild.

Upplýsingar um tengiliði birtast í síma-appinu hjá heimaliðum þannig að þeir geta hringt í tengilði þegar þörf er á.