Ef við viljum bæta við viðbótarupplýsingum um viðkomandi þjónustuþega þá smellum við á [Uppfæra/breyta upplýsingum] þá birtist valmyndin hér fyrir neðan. Engar viðbótarupplýsingar eru skráðar á viðkomandi þjónustuþega á myndinni hér til hliðar.
Hægt er að velja hvort eigi að Fela/Birta/Láta vita af upplýsingum sem settar eru inní kerfið.
Fela: Heimaliði sér ekki upplýsingar
Birta: Heimaliði sér upplýsingar
Láta vita: Heimaliði fær upplýsingar
Þegar búið er að uppfæra / breyta upplýsingum þarf að smella á græna takkann [Vista] annars [Hætta við].