Valinn þjónustusamningur

Hvað

Myndir

Eftir að hafa valið ákveðinn þjónustusaming þá birtist myndin hér til hliðar.  Hér að neðan eru útskýringar á myndinni þ.e. innihaldi þjónustusamnings: 

  • Staða samnings; samningur getur verið með mismunandi stöðu, staða samnings breytist við tilteknar aðgerðir og einnig getur notandi sett samning í tilteknar stöður. Sjá frekari skýrinar hér.
  • Gildistími samnings;  sjá frekari skýringar hér
    • Upphafsdagur
    • Lokadagur
  • Yfirfara samning;  hér er hægt að skrá dagsetningu sem yfirfara á samninginn næst ásamt skýringartexta. CareOn kerfið fylgist með þessari dagsetningu og birtir í sérstakri yfirlitsmynd alla samninga sem þarf að yfirfara.  Reyndar er hægt að skrá fleiri en eina dagsetningu ásamt skýrinartexta. Segja má að hér geti verið um nokkurs komar "áminningar" að ræða fyrir viðkomandi samning.
    • Dagsetning
    • Skýringartexti
  • Þjónustuþegi; nafn, kennitala og heimilisfang
    • Nánar;  frekari upplýsingar um þjónustuþegann, sjá hér.
    • Viðb.; viðbótarupplýsingar um þjónustuþegann, sjá hér.
    • Tengiliðir; skoða, breyta, nýskrá tengiliði þjónustuþega, sjá hér.
  • Þjónustuþættir;  hér birtast þeir þjónustuþættir sem samþykkt var að veita viðkomandi umsækjanda og voru skráðir á umsóknina. Þjónustuþættirnir fá sjálfvalinn vinnutíma sem á alls ekki við í öllum tilvikum og því mikilvægt að yfirfara vinnutíma hvers þjónustuþáttar og breyta eftir því hvað á við í hverju tilviki. Einnig er rétt að yfirfara framkvæmdarlýsinguna og endurbæta ef þörf. Ef þörf er á að breyta tíðni er einnig hægt að gera það.  Jafnframt er hægt að bæta við þjónustuþætti ef þörf.
    • Bæta við þjónustuþætti,  sjá hér.
    • Breyta þjónustuþætti,  sjá hér.
  • Viðbótarupplýsingar samings;  þessar upplýsingar eru uppsetjanlegar í stillingum, en hér er hægt að skrá það sem á við þennan samning.
  • Þjónustumat;  hér er um að ræða mat á þeirri þjónustuþörf sem umsækjandi er metin hafa og var skráð á umsókn hans. Ef þörf er á að breyta þjónustuþörfinni er hægt að gera það hér og velja viðeigandi skýringu fyrir breytingunni. 
  • Þjónustuáælanir;  hver samningur þarf að innihalda að lágmarki eina þjónustuáætlun þar sem fram kemur hvenær heimsækja á þjónstuþegann, hvaða þjónustu á að veita í hverri heimsókn, umfang hverrar heimsóknar og hvaða heimaliði á að sinna heimsókninni. Ef þjónustuþegi fær þjónustu frá fleiri en einni vakt, t.d. dagvakt og kvöldvakt þá er skynsamlegt að útbúa sitthvora þjónustuáætlunina fyrir hvora vakt.
    • Stofna þjónustuáætlun;  með þessari aðgerð er ný þjónustuáætlun stofnuð.
    • Breyta;  ef ekki er búið að virkja þjónustuáætlunina er hægt að velja þessa aðgerð til að gera breytingar á henni. 
    • Fjarlægja;  hægt er að velja þessa aðgerð ef ekki er búið að virkja áætlunina eða búið er að óvirkja hana. Þessi aðgerð fjarlægir áæltlunina þ.e. hún hverfur og verður ekki aðgengileg fyrir notendur.
    • Skoða; ef búið er að virkja eða óvirkja áætlun er ekki lengur hægt að breyta henni, en hægt er að velja þessa aðgerð til að skoða áætlunina.
    • Afrita;  ef búið er að ljúka við áætlun og virkja hana er ekki lengur hægt að breyta henni, en hægt er að velja þessa aðgerð og afrita hana yfir í nýja áætlun sem ekki er búið að virkja og hægt er að gera breytingar á henni. Þegar nýja áætlunin er síðan virkjuð þá óvirkjast sjálfkrafa sú áætlun sem var afrituð þ.e. nýja áætlunin tekur við af henni.  Ath. einnig er hægt að afrita áætlun sem búið er að óvirkja.
    • Óvirkja;  hægt er að velja þessa aðgerð ef hætta á notkun áætlunar sem er virk þ.e. þá verður hún óvirk og óvirkar áætlanir birtast ekki í verkefnalista heimaliða í símanum né í verkáætlun.